Hugarþankar og Vitleysa
18.03.2008 18:19:05 / joifjalar

5 Official NBA Live mótið!!!

Nú verður 5 Nba Live mótið haldið hátíðlegt, og fyrsta mótið með NBA LIVE'08.
Mótið verður haldið að Geirmundarstöðum að þessu sinni.

Mótið verður með sama gamla fyrirkomulaginu og verður spilað á 2 sjónvörpum og verður úrslitaleikurinn í 65" risaskjá. Mótið verður því að öllum líkindum með snærra sniði að þessu sinni. Reglurnar eru þær sömu og áður, 3 auka bjórar á mann í pott. 4 mínútna leikhlutar og leikið verður í All-Star level og engar breytingar verða gerðar á leikmannahópum. Sem fyrr helst rankið ár frá ári þó ekkert sé leikið, og fær sá neðsti á ranki að byrja að velja sér lið og svo koll af kolli.
Minni á að æskilegt er að keppendur mæti í NBA treyju upp á stemminguna.

Sigurvegarinn hlýtur ölið í verðlaun, og svo verða áfram veitt verðlaun fyrir slaka frammistöðu og verður það í formi Kaktus, sem féllu í skaut Sýslumannsins síðast, og Dömubindið fyrir afgerandi væl, sem kom í hlut Úlfsins og hefur hann því titil að verja.

Rankið eftir síðasta mót, og eins og það stendur í dag.  Er eftirfarandi;
1. Einar Jóhannes
2. Jóhann Fjalar
3. Úlfur Arnar
4. Bjarni Jóh
5. Stefán Hára
6. Sýslumannsembættið
7. GM v/ allsherjar reynslu.
8. Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Maggi Hödd.
9. Fugafræðingurinn og Náttúrulífsspekingurinn Gunni Fugl
10. Heimasætan Geirmundsson.

Sá sem er neðst rankaður fær því fyrst að velja lið og svo koll af kolli. Dregið verður í riðla kl 20:15 og hefst mótið á slaginu kl 20:30!! Þeir sem vilja sjá sinn riðil, er bent á að koma tímanlega, og leikirnir hefjast á slaginu 20:30, og þeir sem ekki verða mættir þegar þeirra leikur er settur, verður dæmt tap 30-0!!

Nú er bara um að gera að kómenta með lið um leið og sá neðsti hefur valið er næsta frjálst að velja. Um að gera að velja nú þegar. Við sendum sms á gamla leikmenn mótaraðarinnar, og ef þeir vilja taka upp stýripinnann að nýju þá er þeim það velkomið, bara kómennta á það hér. Núna opnum við fyrir liðaval, og veðmál um hvor endar ofar. Plebbi Hára eða Grafarvogs-Bjöllinn!!!


» 26 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 21:07:06 / joifjalar

Jæja.......

Ja hérna já. Það er óhætt að segja að bloggleti mín sé búin að ná hámarki. Ég hef aldrei haldið dagbók né neitt því um líkt. Það ku vera ástæðan fyrir þessari arfaslöku frammistöðu minni sem minnir á Íslenska landsliðið þessa dagana.

En í tilefni af leik Íslands og Svíþjóðar á morgun, ákvað ég að skella hérna inn laufléttri færslu. Er búinn að vaða svolítið uppi í skólanum í dag og í gær. Hef haldið því fram að Ísland muni sigra á morgun 2-0. Það þarf engann sérfræðing til að sjá að það eru ekki miklar líkur á því, en þegar að maður er staddur í landi þar sem rignir upp í nefið á mönnum eftir sigur þeirra á Spán, þá get ég ekki annað en verið kokhraustari enda Íslendingur í húð og hár. Það má segja að ég sé búinn að veðja lífi og limum fyrir sigur okkar manna á morgun, og hefur bekkurinn í tilefni að því sett mætingu á einn lókal hérna við skólann. Fari það í grábölvað ef  Eiður stendur sig ekki á morgun, allavega krosslegg ég fingur.

Jæja kannski að öðru svona fyrir forvitna, þá gengur skólinn ja..... bara svona bærilega, skemmtilegur er hann allavega og fjölbreyttur. Samt erfitt að sitja dag eftir dag frá 8 - 16 í félagsfr, sálfr og öllum svona bóklegu tímunum á sænsku. Bæði er talað hratt og spurt í takt við það og þarf maður að hafa sig allann við í að halda takti. En það má kannski segja að ég sé taktlaus á því sviði (þó ekki öðrum;)). En ég sagði í upphafi við krakkana að gefa mér 2 mánuði, þá byrja ég að tala sænsku og ég hef akkúrat núna 4 daga. Þannig að þetta verður komið í takt í Des.

Já annars er lífið bara svona þokkalegt þessa dagana, fer heim til Ísl föstudaginn 27 okt. Og er ég orðinn nokkuð spenntur fyrir að koma heim, enda verða þá 2 og hálfur mánuður síðan ég var á klakanum. Hef í tilefni að því verið að safna skeggi og hefur söfnunin staðið í núna 4 vikur, og má segja að ég líti fremur frumstæðilega út.  Þó hefur það að sjálfsögðu ekki áhrif á einstaka persónutöfra mína. En gaman verður að sjá hvernig þetta lítur út þegar ég kem heim. Kallinn er kallaður Fjalar Mellberg hérna......;)

Stebbi og Bjölli kíktu í heimsókn til mín í byrjun Sept, og er óhætt að segja að það hafi verið blautur tími. Við vorum meira og minna að sötra, éta eða liggja flatir í íbúðinn.  Þeir sáu nú ekki mikið af þessari skemmtilegu borg, nema skemmtistaði, skyndibitastaði, Systembolaget, Bingóið sem þeim fannst toppurinn á ferðinni, Liseberg sem er themeparkið hérna sem var nú nokkuð ferskt, Stefán fór reyndar bara í eitt tæki, en við bjarni könnuðum fleiri góð. Það var frábært að fá þessa menn og vona ég að þeir komi fljótt aftur.

Gulla mín kom svo helgina á eftir og var í viku hérna hjá mér. Það má segja að Amor hafi sveimað með okkur allann tímann, því við áttum frábærann tíma hérna saman, og ég get ekki beðið eftir að sjá hana aftur þegar ég kem heim. Við sjáum svo hvað framtíðin ber í skauti sér hjá okkur ;)

Kíkti fyrir skömmu niðr í Lund til Ragga frænda, Sessu og Ragnheiðar Birnu. Þau búa þar í töfrandi litlu háskólasamfélagi. Og má segja að ég hafi nokkurn veginn heillast af bænum og umhverfinu þar. Var yfir helgi þar í góðu yfirlæti og sendi ég þeim bestu þakkir fyrir frábærar móttökur, og vona að við eigum eftir að eiga fleiri skemmtilegar stundir þar. ( Segi við ykkur skötuhjú, varið ykkur ég er kominn með Catan á hreint)

Jæja... er þetta ekki þokkalegt í bili? Endilega kommentið ef ykkur langar að heyra e-ð meira í mér hérna, sé að það er nú ekki mikið  kíkt á síðuna um þessar mundir. En allavega bið ykkur vel að lifa og farið varlega þarna á fróninu.

BTW : öllum sem langar að koma í heimsókn er það guði velkomið og get ég hýst viðkomandi!! um að gera að hafa samband

Leiter

Fjalar Mellberg


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 15:16:40 / joifjalar

Svíþjóð

Hæhæ öll sömul. Vildi bara koma með smá kvittun hérna inn þar sem ég hef ekkert verið að segja ykkur frá fyrstu vikunum mínum hérna.

Vandamálið er að ég hef ekki netið þar sem að ég bý um þessar mundir og get ég fullvissað ykkur um að til stendur að bæta það mál, erum að reyna að fá Ráder hingað til okkar.

En ég er sumsagt að leigja með svíja hérna, Daniel Dreij sem ég vill kalla Dr. Dre og líkar honum það vel. Algjer snilldarnáúngi þar á ferðinni. Búum nálægt Järntorget sem er tiltölulega miðsvæðis í borginni á góðum stað.

Skólinn so far er búinn að vera mjög skemmtilegur og krakkarnir í bekknum eru mjög hjálplegir og fínir. Allt á sænsku og gengur það þokkalega að læra hana.

Ég kem með ítarlegri og betri pistil síðar...

Með ástarkveðjum úr Svíjaveldi...

Flagarinn á nýjum og órannsökuðum slóðum ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 00:20:33 / joifjalar

Brottför nálgast!!

Langt síðan síðast....

Að vanda líður langur tími á milli skrifta hér á þessari annars ágætu síðu. Loforð um bætt skrif duga skammt. En í þetta skiptið ætla ég þó að lofa fleiri skriftum, sökum búferlisflutninga minna frá klakanum stórgóða.


Nenni nú ekki að vera að stikla á stóru um þetta annars blauta og stórskemmtilega sumar, sem hefur einkennst af einstakri gleði, drykkju, lífskrafti og áfram gæti ég talið um flest það góða sem gott líf á að prýða.


Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var viðkomustaður fjölda fólks seinustu helgi, og ekki síður nokkra kátra ungra manna úr Grafarvoginum. Það efni sem vannst í þeirri ferð gæti prýtt stórkostlega kímna gamansögu, af kvennsömum og þó sér í lagi blautum drengjum, sem gerðu allt vitlaust á þessari litlu eyju sunnan við Ísland.


Einungis 5 dagar í að ég yfirgefi þetta land og allt það fólk sem er mér kærast. Skólinn byrjar á Mánudaginn og er tilhlökkun í meðallagi, sökum gríðarlegs söknuðar til vina og fljölskyldu. Verða þessir fyrstu mánuðir því ákaflega erfiðir og lærdómsríkir. Það verður með tár í vanga á sunnudagsmorgunn þegar ég kveð, en jafnframt með bros á vör að takast á við nýja og framandi hluti.


Föstudagskvöldið verður því tekið frá og býð ég til kveðjupartý's að Fjalars hætti, á enn óákveðnum stað, en ég læt ykkur vita sem fyrst. Og vonast eftir að sjá ykkur öll sem skiptið máli!!

Kv. Fjalar !!


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 20:01:30 / joifjalar

Back In Buisness!!!!

Jæja góðan daginn!! Lang síðan Síðast....

Ástæðan er sú að ég gleymdi lykilorðinu mínu og bað um nýtt og fékk það aldrei á meili, trúið mér var búinn að reyna það í mörg skipti, svo fór ég og las allarhjálpar síðuna og viti menn þá kemur það inn í Junk Mail... mjög skynsamlegt... þannig að ég er kominn í gírinn á nýjann leik... og það er af nógu að taka!!

Ætla að skella inn pistil sem ég var með kláran í byrjun Júní...  kannski ekki það nýjasta sem er á döfinni en fokk it!!

Góðan Dag... langt síðan síðast.

Jæja mínir dyggu lesendur, þá er komið að bloggi, mánuður síðan
síðasta blogg leit dagsins ljós. Margt stórskemmtilegt hefur drifið á daga mína síðan þá, og er óhætt að segja að þessi pistill gæti orðið hrikalega langur ef ég stikla á öllu, ætli það sé ekki best að fara aðeins í það helsta.

Var að lenda, vorum að koma frá Ísafirði félagarnir, skelltum okkur þar á ball með hinni geysivinsælu hljómsveit "Húsið á Sléttunni". Vorum alveg trylltir þarna á vestfjörðum og skemmtum okkur hrikalega vel. Nokkuð ljóst að það verða tekin nokkur ródtripp í sumar, það er morgunljóst. Móment ferðarinnar á samt Maggi Hödd, þegar hann hljóp tryllur um Silfurtorgið ber að ofan, öskrandi hástöfum. Alveg agalega fyndið. Efir ballið um 5 leytið í morgun, tókum við leik við Ísfirðinga í körfubolta, menn vel í því, gerðum jafntefli 4-4, leikurinn var stöðvaður af lögreglumönnum, íbúarnir í hverfinu voru að vakna við hamaganginn. Já hreint mögnuð ferð og vil ég nota tækifærið til að þakka samferðamönnum mínum fyrir magnaða ferð!!

Nú heldur maður af landi brott í Ágúst, og er það orðið alveg staðfest. Fékk bréf nú um helgina frá Gautaborg og er ætlast til að ég sé mættur til náms 14. Ágúst. Þar tekur við nýr kafli í lífi Jóhanns Fjalars, að fara að læra. Það er eitthvað sem ég hef ekki gert í fjölda ára og má segja að kominn sé tími til. Inni í mér finn ég til smá kvíða jafnt sem gleði. Kvíðinn er þó af völdum söknuðar til fjölskyldu og vina. Það verður agalegt að geta ekki hitt, stórmeistara vini mína í þennann tíma. en ég geri þó ráð fyrir að menn komi í heimsókn til mín, tryllt bacheloríbúð verður þar á boðstólnum. allavega, þá er komið að því, mennta sig eitthvað.

Barcelona nýtur viðurvistar minnar á morgun!! ég legg þangað í reisu ásamt Fjölskyldu minni og Bjarna! Familían mun þó halda sig í Sitges, en ég og Bjarni ætlum að söðla um í stórborginni!! nánari ferðasaga kemur þegar við lendum á klakanum á Þriðjudag!!

Já þar kom það!! það verður nú líf hér á nýjan leik í nánni framtíð!!

Fjalarnes Festival 2006 veður haldið hátíðlegt hér á Fjalarnesinu í Júlí... nákvæm dagsetning hefur ekki litið dagsins ljós ennþá... en samt sem áður er undirbúningur i fullum gangi!! Þemað hefur verið ákveðið og lengd hátíðarinnar einnig. Um er að ræða heil helgi, gist, djammað, grillað, svamlað, kelað, dansað... og ég veit ekki hvað og hvað .... allar nánari upplýsingar koma í Boðskortum sem verða afhent fyrir Festivalið!!

Jæja þetta er þokkalegt í bili...

Bið að heilsa

Flagarinn frá Fjalarnesi!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 01:59:01 / joifjalar

Bull.......

var búinn að skirfa þrusu pistill.... hann datt út...... gerði annann  og ég er einn af þeim sem lærir ekki af mistökum.... hann datt út líka... nenni ekki að gera þann þriðja... þannig að ... kemur seinna ... ítarlegt ... LOFA...

kv. Brjálaður og hundfúll Flagari

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 03:23:17 / joifjalar

Nokkrir fróðleikspúnktar í tilefni dagsins!!

 

Vissir þú að....?

 

...það er ekki hægt að sleikja á sér olnbogann

...krókódíll getur ekki stungið útúr sér tungunni

...hjarta rækju er í hausnum á henni

...í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki einn stungið hausnum í sand

...svín geta ekki horft til himins

...menn stunda að meðaltali 3000 sinnum kynlíf um ævina og eyða meira en tveimur vikum í kossa

...rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt né svarað í síma

...rottur og hestar geta ekki ælt

...fiðrildi geta bragðað með fótunum

...á tíu mínútum leysir fellibylur meiri orku en er í öllum kjarnorkuvopnum í heiminum samanlagt

...Á meðaltali kafna 100 manns á kúlupennum árlega

...að meðaltali er fólk hræddara við köngulær en dauðann

...35% af fólki sem notar persónuauglýsingar í dagblöðum fyrir stefnumót eru gift

...fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað

...Aðeins 1 af hverjum 2 milljörðum munu lifa til 116 ára aldurs

...Það er mögulegt að leiða kýr upp stiga en ekki niður

...Konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar

...snigill getur sofið í 3 ár

...ekkert orð í ensku rímar við month

...augun á okkur eru alltaf jafn stór frá fæðingu en nefið og eyrun hætta aldrei að vaxa

...allir snjóbirnir eru örvhentir

...forn-egypskir prestar plokkuðu ÖLL hár af líkamanum, líka augnabrúnirnar og augnhárin

...augun á strútum er stærri en heilinn í þeim

...typewriter er lengsta orðið sem hægt er að skrifa með aðeins einni röð á lyklaborðinu

...ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu hvern einasta dag

...ef þú myndir öskra í 8 ár, 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla

...rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær rottur átt milljón afkomendur

...súperman kemur fyrir í hverjum einasta sjónvarpsþætti af Seinfeld

...kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum

..."kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju

...23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur reynt að ljósrita á sér óæðri endann

...þú munt sennilega borða 70 skordýr og 10 köngulær í svefni um ævina

...flestir varalitir innihalda fiskihreistur

...allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför

...ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndi myndast gas sem jafngildir krafti atómssprengju

...fullnæging svína stendur í 30 mínútur (Hvernig finna menn þetta út og af hverju?)

...Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma

...menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar

...sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan

...maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni, togað 30 falda þyngd sína

...Leirgedda (það er fiskur) er með 27.000 bragðkirtla. (Hvað í ósköpunum getur verið svona bragðgott neðst í vatninu?)

...flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það er svipað og maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll

...kakkalakki getur lifað í 9 daga án höfuðs áður en hann sveltur til bana

...sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag

...krossfiskar hafa engan heila (Ég þekki líka svoleiðis fólk)

...rúmlega 95% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogann!!









» 8 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 02:07:14 / joifjalar

5ta OFFICIAL NBA LIVE MÓTIÐ??

Jæja elsku Kútarnir mínir.... það er lítið um að vera á þessari síðu nema þegar NBA Live mót eru á dagskránni!! Nú um helgina er akkúrat komið að því. Þ.e.a.s ef Bjarni getur hóstað það Laugardaginn 1. Apríl. Bjarni boltinn er hjá þér!! Það var verið að tala um skjávarpa og læti, við skulum sjá hvað setur. Ef Bjarni hóstar það ekki, er spurning hvort Sleggjan geti það og verið gestgjafinn í 4ða skiptið?

En látum endilega kommentin Rúlla!!

En eins og hugmyndin var, var þá að spila eins og ávallt með tvær tölvur, og svo þá á Skjávarpa niðr í stofu hjá Bjarna þar sem úrslitakeppnin færi fram og svo uppi. Riðlaskiptingin yrði eins. Skipst yrði á í riðlunum að spila á stóra vellinum. Bjarni var líka búinn að lofa topp Sándi... þannig að pressan er á honum.

Val á liðum yrði sem áður að neðst rankaði maður veldi fyrst, o.s.frv.....
Rankið eftir síðasta mót er þá þannig....
1. Einar                                 5. Bjarni
2. Fjalarinn                           6. Arnar
3. Úlfurinn                              7. Stefán  
4. Jón Brynjar                        8. Sýslumaðurinn

Tveir riðlar sem áður segir, og ég hef heimildir fyrir því að meistarinn á fyrsta mótinu, Valli vilji vera með og yrði hann þá 9 leikmaðurinn og vantar því einn. Spurning hvort við getum ekki fengið BK bróðurinn með, eða Jafnvel hinn reynda... Robba?

jæja látum kómmentin rúlla... kveðja frá Flagaranesi.....

Flagarinn!!

» 21 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 18:38:50 / joifjalar

4ða NBA Live mótið!!

4ða NBA Live mótið fór fram í blískaparviðri á Sleggjustöðum þann 4. mars síðastliðinn. Þar mættust stálin stinn, einnig nýjir leikmenn og aðrir einfaldlega lélegir.

En þetta hófst allt með drætti í riðla sem skipuðust eftirfarandi:

Riðill A                                                Riðill B

Miami Heat - Úlli                                Dallas Mavericks - Addi

Houston Rockets - Einar                    Seattle SuperSonics - Jón Brynjar

San Antonio Spurs - Bjöllinn              Detroit Pistons - Stebbi

Pheonix Suns - Sissi                           Golden State Warriors - Fjalar

Hér voru um að ræða stórskemmtilega riðla, sem gátu farið hvernig sem er. Í riðli A kom fátt á óvart, en Einar sigraði riðlinn nokkuð örugglega, Úlli náði öðru sæti þrátt fyrir tap gegn Nýliða ársins Sissa, sem tapaði svo óvænt fyrir Bjölla. Mikill múgæsingur gerði vart um sig í kringum spilamennsku Úlla, en maður heyrði ýmis orð falla. Úlli skammaði þó einkum tölvuna fyrir dapra spilamennsku.

Í riðli B, sem var töluvert opnari, sigraði Jón Brynjar alla leikina sína, og kom það mönnum í opna skjöldu, sérsaklega í leiknum gegn mér. Ég tapaði þó líka fyrir Stebba og var einfaldlega að spila ílla í riðlinum. Stebbi tapaði svo fyrir Jón Brynjari í æsilegum leik ,og tryggði JB þar með sér sigurinn í riðlinum. Lokastöðurnar voru þá á þann veg

RiðillA                                                                Riðill B

Houston Rockets                                                 Seattle SuperSonics

San Antonio Spurs                                              Detroit Pistons

Miami Heat                                                        Golden State Warriors

Pheonix Suns                                                      Dallas Mavericks

Í úrslitakeppninni hófust leikar Houston gegn Dallas og sigraði Houston það örugglega, Sonics tóku svo Suns, Pistons töpuðu óvænt fyrir Heat og loks lögðu Warriors,  Spurs verðskuldað. 3 mótið í röð þar sem Bjölli er lagður að velli í úrslitakeppninni af Flagaranum. Undarúrslitin voru Því Miami Heat - Houston Rockets, og Golden State Warriors - Seattle Sonics. Það var svo spilað upp á Kaktusinn eða neðstasætisverðlaunin, og endaði það þannig að sætin skipuðust 8 - Sissi, 7 - Stebbi, 6 - Addi, 5 - Bjarni.

Undanúrslitin þurftu ekki að koma neinum knattspekingnum á óvart. Reyndar fyrir leik Miami og Houston hafði Úlli komið með Mourinho comment sem skilaði honum stutt, hann sagðist ætla að leggja meistarann að velli slíkar yfirlýsingar verða að vera sagðar þegar þær eru raunhæfar, úlli féll í sömu gildru og Bjöllinn sem sagði að allt er þegar þrennt er og ætlaði hann sér sigur gegn mér. En að mótinu aftur Einar lagði Úlfinn nokkuð örugglega, og var kominn í úrslit 3ja mótið í röð. Hinu megin lagði ég JB nokkuð örugglega líka og var því einnig kominn í úrslitaleikinn 3ja mótið í röð.

Fyrir Úrslitaleikinn höfðu spekingar spáð Einari nokkuð öruggum sigri. Tölfræðin reyndar öll með honum, 2 úrslitaleikir gegn Fjalari og 2 sigrar. En leikurinn hófst, og hélt ég forystu lengi vel eða fram í 4ða leikhluta að þá sýndi Einar mér hvar hann keypti ölið og skóp sigurinn á reynslunni hann talaði um að þetta hafi verið lang erfiðasti leikur hans á mótinu, og skal engan undra. Þetta því hans 3 sigur í 3ja ´mótinu í röð. Spekingar hafa reyndar verið að benda á að mótið hefur farið fram á hans heimavelli í öllum þessum sigrum, og er því öllum velkomið að hósta þessi mót. En óskum Einari til hamingju með 3 sigurinn í röð.  Að lokum skulum við setja upp rank listann fyrir næsta mót!!

1. Einar                                       6. Arnar

2. Fjalar                                      7. Stefán

3. Úlfur                                       8. Sissi

4. Jón Brynjar                             9. Valli Sport

5. Bjarni                                    10. Maggi

Bjarni hefur lagt inn beðni til mótstjórnar um að fá að halda næsta mót, og hefur verið lögð inn beðni um að það sé fyrsta helgin í Apríl. Á laugardegi. Eru menn beðnir um að melda sig um það mál, hverjir komast og hverjir ekki. Bjarni vill enn fremur koma því á framfæri að úrslitakeppnin yrði spiluð í gegnum skjávarpa og í rugl surroundi þannig að þetta gæti orðið svaðaleg keppni, og jafnvel sú veglegasta til þessa. og biðjum við menn að melda sig í kómennt. Jafnframt verður valið um lið, þannig að sá neðsti á rankinu byrjar o.s.frv.

Þangað til næst.

Kveðja Flagarinn


» 13 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 23:49:59 / joifjalar

Þá er komið að Því !!!

Jæja elskulegir lesendur þá er komið að því sem þið hafið beðið eftir!!!

4ja official NBA Live mótið verður um helgina á Sleggjustöðum!! Nánar tiltekið á Laugardaginn 4. Mars.
Já það verður haldið hátíðlegt. Mæting er á Sleggjustaði kl 19:00 stundvíslega. Þátttökuskilyrði eru að koma með drykkjarföng, og koma með 3 auka hálflítra kvikyndi í potttinn!!    Þáttökuaðilar eru mennirnir sem taldir eru hér upp í Rankinu. Tilkynning um þáttöku þarf að sendast í smsi til mín síðasta lagi á föstudag. Þetta er 4ja mótið sem haldið er, og það fyrsta á þessu ári. Sigurvegarar seinustu móta, voru Valli í fyrsta mótinu, en honum hefur hrakað statt og stöðugt síðan. Hins vegar hefur stjarna Sleggjunnar risið og hefur hann sigrað á seinustu 2 mótum. Nýliði ársins í fyrra var sýslumaðurinn úr Húsahverfinu.

Með lið að gera verða menn að panta sér hérna á síðunni minni, og gildir sá sem fyrstur pantar heldur sínu liði. Að þessu sinni munum við spila nýja leikinn, NBA Live 2006. Og verður svo verðlaunahafinn hylltur með tilhlítandi verðlauagrip sem mótstjórn, hyggst fjárfesta í fyrir mót. Mótstjórnin stendur af tveimur einkar dyggum aðdáendum NBA körfuboltans. Ég er í mótstjórn enda stofnandi þessa móts, og svo staðarhaldarinn og Excel meistarinn Einar.

Rankið er byggt á frammistöðu manna á seinustu mótum. Og geta menn farið ofar en frammistaðan talar sínu máli.
Rankið er þá svo hljóðandi!!
1. Einar "Sleggja"
2. Jói Fjalar "Flagari"
3. Jón Brynjar " Djamm Brynjar"
4. Stefán Örn "Mihajlovic"
5. Arnar " Stefanson"
6. Sigurgeir "Sýslumaður"
7. Valgeir Örn "fallin stjarna"
8. Bjarni "Grafarvogs-Bjölli"
9. Maggi "Pera"
10. Úlli " Da Wolf"

Úlli hefur ekki tekið þátt áður og er af þeim sökum neðstur. Annað Bjölli var tekinn fyrir aganefnd og þarf að koma með 4 hálfslítra sökum óíþróttalegrar framkomu í síðasta móti. Ef einhver annar en Bjarni er á móti því þá á að láta í sér heyra. Annars er Bjöllinn ekki gjaldgengur nema að hann komi með einn í refsingu.
Jæja þá er um að gera að panta sér lið hér í Kómentum og látum nú hárreystin hefjast!!
Kv. Fjalarinn

» 66 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 17:05:45 / joifjalar

mourinho, fáviti eða ekki?

Jæja þá eru fyrstu leikir í 16-liða úrlslitum meistaradeildar evrópu yfirstaðnir og verður maður að taljast nokkuð kátur með niðurstöður þeirra. Tökum röðina og spáiði svo fyrir um næstu umferð!!

Werder Bremen 3, schulz, borowski, micoud

Juventus 2, nedved, trezeguet

Óvæntur sigur hjá heimamönnum í Bremen. Menn höfðu verið að tala um að Juventus væri með besta lið Evrópu og þættu líklegastir til sigurs. En þrátt fyrir tap þeirra á Weserstadion þá held ég að þeir taki heimaleikinn nokkuð örugglega og fljóti því áfram í 8-liða úrslit. Grafarvogs-Bjöllinn hafði reyndar heimildir fyrir því að stemmingin í Bremen hafi verið svo gífurleg fyrir þessum leik að þeir ætluðu sér ekkert annað en sigur!Þetta kom bjöllanum ekki á óvart!!

Juventus fer þarna áfram!!!

Rangers 2, lovenkrands, pena sjálfsm.

Villarreal 2, Riquelme víti, Forlán

Sennilega tvö af slakari liðum sem eftir eru í keppninni, fyrirfram bjóst maður svo sem ekki við neinu, hallaðist kannski frekar að Villarreal myndu hafa þetta sem þeir væntanlega gera, fara með fína stöðu á heimavöllinn sem vegur mjög þungt í þessari keppni.

Villarreal fer áfram !!

Chelsea 1, Motta sjálfsm.

Barcelona 2, Terry sjálfsm, Eto\'o

Já stórleikur þarna á ferðinni og alveg aaagaleg skemmtun. Leikurinn fór vel af stað, og voru Barca ívið sterkari. Svo kom vendipúnktur í leiknum þegar Messi var búinn að fara svo ílla með Hollenska typpahausinn hjá chelsea að Del Horno braut gróflega á honum , var reyndar nýbúinn að merkja á honum lærin, og kom svo þarna, ef menn vilja meina að hann hafi ætlað í boltann þá geta þeir eins farið með kommentin upp í rassgatið á sér. En allavega... svo skora Chelsea þokklegt mark eftir herfileg mistök hjá Valdéz í marki Barca, en gulldrengurinn Terry jafnaði svo fyrir Barca eftir að hafa sneytt hann laglega í eigið net. Það var svo Eto\'o sem stangaði hann í netið og tryggði Barca sigurinn í frábærum leik. Chelsea hefðu getað fengið 2 víti á sig réttilega dæmd, björguðu á línu, fengu boltann í sammann hjá sér... þannig þeir meiga vel við una að hafa ekki tapað stærra. Gudbonsen var óvenjugóður þarna .. vonandi að hann reyni að halda þessu formi svona einu sinni. Mourinho ætti að halda sér saman, kvartar yfir dómara þegar dómarinn hefði getað leikið hann mun verr. Barcelona á heimaleikinn fram undan og er erfitt að sjá þá klúðra þessu!

Barcelona kemst áfram þarna!

Ajax 2, huntelaar, rosales

Inter 2, stankovic, crúz

Já óvænt hjá ajax að ná jafntefli við inter. ajax voru nú ekki sterkir að sjá þegar maður horfði á ´þá gegn Arsenal. Inter liðið á að vera töluvert sterkara, enda sýndu þeir það kannski þarna með því að ná að jafna eftir að hafa lent undir 2-0. Eiga heimaleik framundan og vinna það.

Inter áfram !!

Real Madrid 0,

Arsenal 1, henry

Já þessi leikur var ótrúlega opinn og skemmtilegur í alla staði. Maður var nú frekar hræddur fyrir þennan leik og í hreinskilni bjóst ég við að mínir menn myndu bíða afhroð þarna úti. En allt kom fyrir ekki og mínir menn voru mikilu betri, sýndu skemmtilega takta og áttu fullt af færum. beckham fékk besta færi Real en Lehmann varði vel. Henry skoraði svo eftir að hafa hlaupið frá miðjunni og sett hann. Maður er svekktur eftir á að hafa hreinlega ekki farið með meiri mun þaðan. Arsenal á heimleikinn eftir á frímerkinu, og það getur svo sem allt gerst. en mínir menn eru með góða stöðu, svo ég ætla að leyfa mér að segja að mínir menn fari áfram þarna!

Arsenal áfram hér!!!

PSV 0,

Lyon 1, Juninho Pernambucano

Lyon heldur áfram að koma á óvart, eftir að hafa unnið riðilinn sinn sem innhélt meðal annars Real Madrid þá eru þeir að vinna hérna PSV á útivelli og gott sem tryggja sér áfram. Greinilega mjög gott lið hér á ferðinni sem er vert að fylgjast með.

Lyon áfram Hér!!

Benfica 1, Anderson Luís da Silva

Liverpool 0,

Evrópumeistarnir sýndu slakan leik gegn Benfica, varnaleikur er ekki kannski ekki besta sóknin ef maður ætlar sér að ná einhverju á útivelli. Þetta verður erfitt fyrir Liverpool, enda hefur sóknarleikur þeirra ekki verið upp á marga fiska undanfarið. Ég ætla þó að leyfa mér að veðja á þá, sökum reynslu.

Liverpool áfram hér!!

Bayern Munich 1, Ballack

AC Milan 1, Shevchenko

Já milan sýndu styrk með því að ná jafntefli á útivelli. Það mun vega þungt þegar heim er komið að hafa náð marki á útivelli. og þar af leiðandi tippa ég á að Milan fari þarna áfram.

Milan Áfram!!

Já góðir hálsar, þetta voru svona Meistaradeildar hugleiðingar hjá mér. Annars verður ekkert af NBA fyrstu helgina í mars, sökum þess að ákveðið var að halda árshátíð Vængja þá helgi. NBA verður að bíða betri tíma. Helgi framundan, ætli maður geri ekki e-ð rólegt í kvöld allavega. Er að vinna og svona. annars er One Tree Hill að gera sig núna hjá mér. Er búinn með allt OC sem ég á, þannig að ég plöggaði OTH en ég hef ekkert horft á það síðan í 1. seríu. Er kominn vel á veg í annari og hef gaman af þessari hádramatík, enda oft verið nefndur dramakóngur. Það væri gaman að sjá hvað menn hafa að segja um Meistaradeildina og mygluskánina Mourinho?

annars óska ég ykkur góðrar helgar


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 17:51:18 / joifjalar

Word!!!

jæja góðir hálsir... hvernig lafir hann?

Brillíant helgi afstaðin, og fleiri góðar framundan svo ekki sé meira sagt. Sylvía Nótt kynþokkafyllsta kona landsins, kom það nokkrum á óvart? Lagið hennar er frekar fyndið og klæðaburður stúlkunnar er afburða góður. Rómaríó er líka agalegur snillingur, þetta lag á eftir að fara langt í næsta júróvísjón, það held ég að sé nokkuð öruggt!!

Það er heilmikið búið að vera á dagskránni frá því ég skriftaði síðast. Nenni að stikla á því hérna, enda myndi ykkur held ég leiðast að lesa um mitt daglega amstur!!

kem með betri pistil hérna inn fljótlega...

p.s spurning um NBA Live mót fyrstu helgina í Mars... hvernig hljómar það?


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 22:26:04 / joifjalar

jójó waz up!!!

Jæja lesendur góðir, sem slefið yfir 80 talsins á degi hverjum, það er ekki laust við að það sé að komast helgarfílingur í mann, þó helgin verði heltekin af vinnu!

Fór í mína hinstu ferð á Highbury leikvanginn í Lundúnum í síðustu viku, og þó að mínir menn hafi legið 2-3 fyrir hömrunum, þá var þessi leikur hin besta skemmtun. 5 Mörk og að fá að upplifa stemminguna á Highbury svona lokaseasonið. Alveg ólýsanlegt. Þessi ferð var sneisafull af stórkostlegum uppákomum sem verða ekki rituð hér, heldur einungis lýst yfir einum "Pænt" eins og Doktorinn myndi orða það.
Kíkti í leiðinni á Emirates völlinn, sem er að rísa þarna steinsnar frá.... glæsilegur völlur sem maður kíkir í Pílagrímsferð næsta haust.

Jahérna og jæja... hvað get ég sagt, hvað get ég gert söng einhver fuglinn hérna um árið.

Þátturinn um kallana hefur verið sýndur við mikinn fögnuð undanfarnar vikur á Sirkus, og verð ég að segja að ég hef séð alla þessa þætti. Þessir gaurar eru aaaaagalega beeelaðir eða bara hreinlega hálfvitar. Mín spurning er sú hvort að þessir menn séu raunverulega að meina það sem þeir segja og gera.. eða hvort þetta sé bara eitt stórt grín. Og ef þetta er bara grín, þá verður að segjast alveg eins og er að þetta er frábær djókur sem þeir eru með. Þeir eru ekki bara harðir heldur líka mjúkir, þetta er alveg aaaagalega lélegt sjónvarpsefni en samt lætur maður þetta ekki framhjá sér fara. Kanski segir það meira um mig en nokkurn annann ég veit ekki. Hvað finnst ykkur?

Meistaradeildin að fara að hefja göngu sína á ný fljótlega. Hvernig líst mönnum á viðureignirnar?
Arsenal - Real Madrid = held að mínir menn hafi þetta, þeir eru Liverpool síðasta árs er það ekki málið?
Liverpool - Benfica = Evrópumeistararnir fara létt með United banana held ég, reynsla bara er það ekki?
Chelský - Barcelona = Uzzzz hvað maður heldur með Barcelona þarna... Ronaldinho sínir allar sínar bestu hliðar, og liðsfélagar hans sýna Drogba að hann er ekki besti leikmaður Afríku með því að snýta honum í hvívetna og setja Eto'o upp í geggjuð færi. Barcelona klárar þetta.
Hinir leikirnir eru bara drasl er það ekki? man allavega ekki hvaða aðrir leikir það eru!!

jæja setjið inn skoðun með Kallana og Meistaradeildina... og svo þið hin af þessum 80, látið mig vita hver þið eruð!!

kv. Fjalarinn

» 14 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 14:16:15 / joifjalar

Framtíðin björt?

Jú góðir lesendur... framtíðin er björt.

Ég hef ekki setið auðum höndum í dag.. og er í óða önn að skipuleggja framtíðina. Eins og staðan er í dag, gæti verið að ég haldi utan strax í Maí og fari að vinna í BNA, eða hjá Camp America og er það eitt sem ég er að skoða. Sumarið er reyndar tíminn hérna á klakanum og væri þvi leiðilegt að yfirgefa land og þjóð á þessum blómlega tíma.. en við skulum sjá hvað setur.. þetta er í smá ferli núna en ætti að ráðast á næstu dögum.
Við hliðina á þessu gerði ég mér lítið fyrir og sótti um nokkra skóla á erlendri grundu. Þá einna helst í DK, og er held ég löngu tímabært að setjast að námi sem heldur áhuga mínum óhögguðum. Og er það ferli reyndar töluvert lengra.. og styttra á veg komið. En það er margt að breytast og kominn tími á að lyfta sér upp af rassgatinu og gera e-ð.

En spurning um að halda NBA Live 2006 mót um helgina!! hvað segja menn við því!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 02:35:01 / joifjalar

hóhóhó

Jæja skriftaði seinast á síðasta ári.. nenni ekki að gera áramótapistil, er alltaf andvaka og er orðinn hundleiður á því... annars er nokkuð brattur bara.. er byrjaður að horfa á Prison Break sem eru aaaaaaaaagalega góðir þættir.

Já og jæja... veit ekki hvað ég á að segja við ykkur.. enda búinn að bregðast dyggum lesendum mínum...með að koma ekki með áramótapistil... en í staðinn ætla ég að leggja fyrir ykkur sem nennið.. smá svona... ja ... tékka hvað ykkur finnst um mig og fannst.. kannski barnalegt..en hey.. ég þarf smá búzt þessa dagana í skammdeginu... Fann þetta á bloggsíðu skoðun minni hérna í nót... jæja þið sem nennið komið með það!

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Langar þig að kyssa mig?
5. Gefðu mér gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það.
6. Lýstu mér í einu orði.
7. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
8. Lýst þér ennþá þannig á mig?
9. Hvað minnir þig á mig?
10. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
11. Hversu vel þekkiru mig?
12. Hvenær sástu mig síðast?
13. Hefur þig einhverntíman langað að segja mér eitthvað en ekki geta það?
14. Ef eitthvað skelltu því í smettið á mér!!

Kv. aagalegi Fjalar



» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5