Ja hérna já. Það er óhætt að segja að bloggleti mín sé búin að
ná hámarki. Ég hef aldrei haldið dagbók né neitt því um líkt. Það
ku vera ástæðan fyrir þessari arfaslöku frammistöðu minni sem
minnir á Íslenska landsliðið þessa dagana.
En í tilefni af leik Íslands og Svíþjóðar á morgun, ákvað ég að
skella hérna inn laufléttri færslu. Er búinn að vaða svolítið uppi
í skólanum í dag og í gær. Hef haldið því fram að Ísland muni sigra
á morgun 2-0. Það þarf engann sérfræðing til að sjá að það eru ekki
miklar líkur á því, en þegar að maður er staddur í landi þar sem
rignir upp í nefið á mönnum eftir sigur þeirra á Spán, þá get ég
ekki annað en verið kokhraustari enda Íslendingur í húð og hár. Það
má segja að ég sé búinn að veðja lífi og limum fyrir sigur okkar
manna á morgun, og hefur bekkurinn í tilefni að því sett mætingu á
einn lókal hérna við skólann. Fari það í grábölvað ef Eiður
stendur sig ekki á morgun, allavega krosslegg ég fingur.
Jæja kannski að öðru svona fyrir forvitna, þá gengur skólinn
ja..... bara svona bærilega, skemmtilegur er hann allavega og
fjölbreyttur. Samt erfitt að sitja dag eftir dag frá 8 - 16 í
félagsfr, sálfr og öllum svona bóklegu tímunum á sænsku. Bæði er
talað hratt og spurt í takt við það og þarf maður að hafa sig
allann við í að halda takti. En það má kannski segja að ég sé
taktlaus á því sviði (þó ekki öðrum
). En ég sagði í upphafi við
krakkana að gefa mér 2 mánuði, þá byrja ég að tala sænsku og ég hef
akkúrat núna 4 daga. Þannig að þetta verður komið í takt í Des.
Já annars er lífið bara svona þokkalegt þessa dagana, fer heim
til Ísl föstudaginn 27 okt. Og er ég orðinn nokkuð spenntur fyrir
að koma heim, enda verða þá 2 og hálfur mánuður síðan ég var á
klakanum. Hef í tilefni að því verið að safna skeggi og hefur
söfnunin staðið í núna 4 vikur, og má segja að ég líti fremur
frumstæðilega út. Þó hefur það að sjálfsögðu ekki áhrif á
einstaka persónutöfra mína. En gaman verður að sjá hvernig þetta
lítur út þegar ég kem heim. Kallinn er kallaður Fjalar Mellberg
hérna......
Stebbi og Bjölli kíktu í heimsókn til mín í byrjun Sept, og er
óhætt að segja að það hafi verið blautur tími. Við vorum meira og
minna að sötra, éta eða liggja flatir í íbúðinn. Þeir sáu nú
ekki mikið af þessari skemmtilegu borg, nema skemmtistaði,
skyndibitastaði, Systembolaget, Bingóið sem þeim fannst toppurinn á
ferðinni, Liseberg sem er themeparkið hérna sem var nú nokkuð
ferskt, Stefán fór reyndar bara í eitt tæki, en við bjarni könnuðum
fleiri góð. Það var frábært að fá þessa menn og vona ég að þeir
komi fljótt aftur.
Gulla mín kom svo helgina á eftir og var í viku hérna hjá mér.
Það má segja að Amor hafi sveimað með okkur allann tímann, því við
áttum frábærann tíma hérna saman, og ég get ekki beðið eftir að sjá
hana aftur þegar ég kem heim. Við sjáum svo hvað framtíðin ber í
skauti sér hjá okkur 
Kíkti fyrir skömmu niðr í Lund til Ragga frænda, Sessu og
Ragnheiðar Birnu. Þau búa þar í töfrandi litlu háskólasamfélagi. Og
má segja að ég hafi nokkurn veginn heillast af bænum og umhverfinu
þar. Var yfir helgi þar í góðu yfirlæti og sendi ég þeim bestu
þakkir fyrir frábærar móttökur, og vona að við eigum eftir að eiga
fleiri skemmtilegar stundir þar. ( Segi við ykkur skötuhjú, varið
ykkur ég er kominn með Catan á hreint)
Jæja... er þetta ekki þokkalegt í bili? Endilega kommentið ef
ykkur langar að heyra e-ð meira í mér hérna, sé að það er nú ekki
mikið kíkt á síðuna um þessar mundir. En allavega bið ykkur
vel að lifa og farið varlega þarna á fróninu.
BTW : öllum sem langar að koma í heimsókn er það guði velkomið
og get ég hýst viðkomandi!! um að gera að hafa samband
Leiter
Fjalar Mellberg